Kennari: Auður Björnsdóttir
Staður: Hólmavík
Námskeið hefst: 16/05/2008 - Umsóknarfrestur til: 15/05/2008
Fjöldi kennslustunda: Óákveðið
Ath: Kennt föstudaginn 16., laugardaginn 17. og sunnudaginn 18. maí
4-5 þátttakendur/ hundar í hóp.
Áhersla er lögð á að eigandi nái góðu sambandi við hundinn sinn og hundurinn tengist eiganda sínum. Að eigandi hrósi og umbuni hundinum fyrir að gera rétt en einnig að hundurinn læri hvað orðið nei þýðir og beri virðingu fyrir eiganda sínum. Farið er yfir þroska hunda frá 3 mánaða -7 ára og þeim kennt að leita að hlutum eða mat. Einnig allar almennar hlýðniæfingar s.s. að sitja,liggja, bíða, ganga hæl, koma hæl og innkall.