|
||||
|
|
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað.
Fjallað er um forystuhlutverk leiðtogans í samskiptum við starfsfólk og leiðir til að hrósa, hvetja og veita samstarfsfólki jákvæða endurgjöf.
Það er starfsfólki mikilvægt að vera upplýst um til hvers er ætlast af því í starfi og að fá markvissa og uppbyggilega endurgjöf. Hrós er hvetjandi þegar vel gengur og uppbyggileg endurgjöf er lykilatriði þegar bæta þarf frammistöðu og árangur. Á námskeiðinu er fjallað um leiðir til að hrósa, hvetja og veita jákvæða endurgjöf hvort sem þarf að viðhalda eða bæta frammistöðu.
Ætlað stjórnendum, millistjórnendum og starfsmannastjórum.