Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Hugarkort: Verkfæri kennarans - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endurmenntun kennara
Kennari: Hróbjartur Árnason, lektor við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Verð kr: 13.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 20/10/2010 - Umsóknarfrestur til: 13/10/2010
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt mið. 20. okt. kl. 12:00 -16:00

Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað.

Hugarkort geta létt kennaranum störfin verulega. Á þessu námskeiði munu kennarar læra ýmsar aðferðir til að nota hugarkort til að bæta:

  • Eigin undirbúning fyrir kennslu
  • Skipulagningu kennslu
  • Samvinnu og aðstoð við nemendur

Gert er ráð fyrir að þátttakendur mæti með fartölvu á námskeiðið.

Þátttakendur munu læra að nota hugarkort sem skipulagningarverkfæri og þannig auðvelda mörg verkefni sem snúa að skipulagningu kennslunnar. Hugarkort geta auðveldað yfirsýn yfir kennslu og verkefni heils misseris, jafnt sem einnar kennslustundar. Þar að auki munu þátttakendur læra að nýta hugarkort til að kynna og útskýra námsefnið fyrir nemendum sínum. Þá munu þátttakendur kanna notkun hugarkorta til þess að útbúa námsefni fyrir nemendur sína, hvort sem það er gefið út - eða því dreift á pappír eða á vefnum.

Að loknu námskeiði er stefnt að þvi að þátttakendur geti nýtt hugarkort til að safna upplýsingum og raða þeim við undirbúning kennslu.

Kennsla fer fram með stuttum fyrirlestrum, umræðum, einstaklings- og hópverkefnum.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is