Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Hvað er svona merkilegt við Hemingway? - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Ástráður Eysteinsson, prófessor í bókmenntafræði við HÍ
Verð kr: 12.500 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 11/03/2010 - Umsóknarfrestur til: 05/03/2010
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt á fimmtudögum kl. 20:15-22:15 (3 skipti). Hefst 11. mars.

Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.

Fjallað verður um ritverk bandaríska nóbelshöfundarins Ernests Hemingways, og einnig vikið að ímynd hans sem rithöfundar og ævintýramanns. Í lífi sínu og verkum spurði Hemingway iðulega um hvað væri svona merkilegt við það að vera karlmaður. Á námskeiðinu verður gætt að stríðinu, útlegðinni, ástinni og samskiptum kynjanna í verkum höfundarins. Hver eru einkenni hins fræga “harðsoðna stíls” Hemingways? Og hvernig hefur Hemingway farnast á Íslandi?

Mikilvægt er að skrá sig sem allra fyrst. 

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is