|
||||
|
|
Á námskeiðinu verður fjallað um undirstöðuatriði jarðgerðar/safnhaugagerðar. Fjallað verður um hvaða hráefni er hægt að nýta til jarðgerðar og æskileg blöndunarhlutföll þeirra. Farið verður yfir meðhöndlun og umhirðu safnhaugsins með tilliti til þess hvernig ná megi jöfnu og góðu niðurbroti. Hringrásaferli næringarefna og orku verða skoðuð. Lokaafurð jarðgerðar er kjörin áburður til notkunar í heimilisgarðinn, landgræðslu eða skógrækta. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem áhuga hafa á endurnýtingu lífrænna afurða sem til falla á heimilum og görðum. Haldið í samstarfi við Endurmenntun LbhÍ.
Lágmarksfjöldi á námskeiðið eru 10 þátttakendur.