|
||||
|
|
Þjónustuliðar – grunnám er 60 kennslustunda nám ætlað þeim sem starfa við ræstingar, hreingerningar eða sótthreinsun, starfa í býtibúrum, borðstofum, kaffistofum, matsölum eða þvottahúsum.
Meðal þeirra þátta sem teknir eru fyrir í náminu eru sjálfstyrking, samskipti, líkamsbeiting, öryggismál, skyndihjálp, hreinsun, smitgátt og þjónusta.
Hægt er að lesa meira um þjónustuliðanám á vef Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins www.frae.is.