Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Jurtir og náttúrulækningar - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Hafdís Sturlaugsdóttir hjá Náttúrustofu Vestfjarða.
Verð kr: 8.300 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði.
Námskeið hefst: 14/06/2012 - Umsóknarfrestur til: 10/06/2012
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt fimmtudaginn 14. júní kl. 18:00-22:00.

Á námskeiðinu verður þátttakendum kennt að þekkja plöntur sem nýttar eru sem tejurtir eða til lækninga. Farið verður yfir útlit plantna og síðan farið í vettvangsferð. Í vettvangsferðinni safna þátttakendur plöntum og læra um leið að þekkja þær og hvernig gott er að bera sig að við söfnunina. Þá verður farið yfir hvaða aðferðir eru bestar til að geyma plöntur og plöntuhluta, hvaða tæki er helst að nota og fleira því tengt.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is