Kennari: Ólöf Davíðsdóttir
Verð kr: 9.000 kr. -
Staður: Rammagerð Ísafjarðar, Aðalstræti 16
Námskeið hefst: 16/05/2009 - Umsóknarfrestur til: 15/05/2009
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt laugardaginn 16. maí kl. 11:00-16:00 (eða lengur ef þarf til að klára).
Á námskeiðinu búa þátttakendur til mósaik mynd á lampa þannig að úr verður fallegt ljós. Allt efni innifalið í námskeiðsgjaldi.
Ólöf er að mestu sjálfmenntuð en hefur farið á fjölmörg námskeið og vinnur um þessar mundir mest í gler en auk þess hefur hún staðið fyrir stuttum námskeiðum í vinnustofu sinni í Gallerý Brák í Borgarnesi. Hún er frumkvöðull í endurvinnslu á gleri hér á landi og nýtir gjarnan það sem aðrir henda frá sér. Hún hefur haldið margar sýningar hér á landi og erlendis, bæði einkasýningar og í samstarfi við aðra listamenn.
Hámarks fjöldi þátttakenda eru 8 manns og því mikilvægt að skrá sig tímanlega.