Kennari: Ásmundur Hilmarsson, Fræðslumiðstöð atvinnulífsins
Verð kr: 3.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 18/08/2009 - Umsóknarfrestur til: 14/08/2009
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath: Kennt þriðjudaginn 18. ágúst kl. 11:00-16:00
Námskeið ætlað þeim sem koma að bóklegu námi samkvæmt námsskrám Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins (FA) eða hafa áhuga á að kynna sér það. Einnig áhugavert fyrir þá sem kenna bóklegar greinar samkvæmt öðrum námsskrám.
Markmið
Þekking og færni: þátttakendur ræða og æfa:
- Gildi sérstakra námsskráa sem henta fullorðnum einstaklingum í markhópi FA
- Hvernig gott er að nýta námsskrána sem hjálpartæki í kennslunni
- Gildi námsdagbókar og notkun hennar
- Réttmæti kenninga um námsnálgun og notkun matslista til að fá fram vísbendingar um námsnálgun
- Mat á tungumálaleikni
- Notkun verkfæra og tækja í tölvum, á Netinu og fyrir spilara sem kunna að duga til tungumálanáms og stærðfræðináms
- Leit, val og notkun á viðeigandi tækjum og verkfærum
Viðhorf: þátttakendur rökræða:
- Hugmyndafræði og aðferðafræði náms samkvæmt námsskránni
- Gagnsemi og notkun námsdagbókar
- Kenningar um námsnálgun og gagnsemi einfaldra matstækja
- Tungumálaleikni og matstæki
- Stærðfræði og veruleiki. Mat á stærðfræðileikni.
Kennsluáætlun
Kynning þátttakenda og leiðbeinanda.
Aðferð: Innlögn með glærum, hópavinna, umræður og verkefni. Rædd og unnin drög að námsdagbók. Ræddar keningar um námsnálgun og æfð notkun matslista fyrir vísbendingar um námsnálgun. Könnuð notkun Dialang. Könnuð notkun matslista evrópsku tungumálamöppunnar. Æfð notkun tækja í WORD til að nota í tungumálanámi. Könnun á orðabókum og öðrum tækjum á Netinu sem koma til greina í tungumálanámi og stærðfræðinámi. Kannaðir möguleikar á notkun spilara í tungumálanámi.