Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Konurnar í Biblíunni: Frá Evu til Maríu móður Guðs - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Dr. Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í samstæðilegri guðfræði með áherslu á kvennaguðfræði við Guðfræðideild HÍ.
Verð kr: 15.300 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður
Námskeið hefst: 12/02/2009 - Umsóknarfrestur til: 12/02/2009
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath: Kennt fimmtudagana 12. og 19. febrúar og mánudaginn 23. febrúar kl. 20:15 - 22:00 (3 skipti). Mikilvægt að skrá sig tímanlega.

Námskeið kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ).

Er talað um einhverjar aðrar konur í Biblíunni en Evu og Maríu Guðsmóður? Er Biblían ekki fyrst og fremst karlasaga? Eru konurnar að minnsta kosti ekki allar í aukahlutverkum? Og hvað með nútímann? Skipta sögur þessara kvenna einhverju máli í dag?

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á sögur um konur sem varðveittar eru í Gamla og Nýja testamentinu. Konurnar hafa margvíslegan bakgrunn og varpa sögur þeirra ljósi á stöðu kvenna innan gyðing-kristins samfélags á liðnum öldum. Þrátt fyrir völd karla og þann karlmiðlæga hugsanahátt sem var ríkjandi í þessum samfélögum, þá er ýmislegt sem kemur á óvart þegar farið er að skoða betur sögur þeirra kvenna, sem af ýmsum ástæðum er getið um í ritum Biblíunnar. Með aukinni áherslu á virka þátttöku kvenna í lífi og starfi kristinnar kirkju, hefur áhugi á þessum sögum aukist. Því verður ekki aðeins hugað að hefðbundinni túlkun þessara sagna, heldur einnig þeim áhrifum sem þær hafa haft á líf kvenna í sögu og samtíð.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is