|
||||
|
|
Kóraninn, helgirit Íslam, er einn mikilvægasti texti mannkynssögunnar. Múslimar trúa að Kóraninn innihaldi bókstafleg orð Guðs og þess vegna myndar þessi bók grundvöllinn að helstu trúarhugmyndum Íslam. Á sama tíma er deilt um að hversu miklu leyti eigi að heimfæra og innleiða trúarhugmyndir þess í nútímasamfélög.
Á þessu námskeiði verða saga og helstu guðfræðileg, lagaleg og pólitísk atriði Kóransins skoðuð. Fjallað verður um uppbyggingu og sögu Kóransins og eftirfarandi stef tekin fyrir: sjálfsmynd Kóransins, sköpun veraldar og dómsdagur, hugmyndir um réttlæti, viðhorf til annarra trúarbragða (sér í lagi Kristni og gyðingdóm), staða kvenna, samfélagsskipan og hvort / hvenær / hvernig eigi að heyja stríð.
Námskeiðið er fjarkennt frá Endurmenntun H.Í.