|
||||
|
|
Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað. Haldið í samstarfi við geðsvið Landspítalans.
Á námskeiðinu, sem byggir á kenningum og aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar, er fjallað um eðli og einkenni kvíða, helstu kvíðaraskanir og æskileg viðbrögð við kvíða barna og unglinga.
Fjallað verður um eðli og einkenni kvíða, af hverju börn verða kvíðin, hvernig kvíði birtist, hvernig hann viðhelst og hvernig æskilegt er að bregðast við kvíða. Helstu viðhaldandi þættir verða kynntir, s.s. hughreysting, hugsanaskekkjur, flótti og forðun.
Kynntar verða helstu kvíðaraskanir barna og unglinga, aðskilnaðarkvíða, almenna kvíðaröskun, fælni, ofsakvíða, félagskvíða, kjörþögli og áráttu-þráhyggjuröskun. Auk þess verður farið í uppeldisaðferðir og æskileg viðbrögð við kvíða barna og unglinga og notkun atferlismótunar til að takast á við kvíða með stigvaxandi hætti.
Kennslan byggir á fyrirlestrum um ofangreinda þætti, umræðum og léttum verkefnum.
Námskeiðið er ætlað foreldrum og umönnunaraðilum barna og unglinga. Hjónum og pörum sem sækja námskeiðið býðst 10% afsláttur af báðum námskeiðsgjöldum. Takmarkaður þátttakendafjöldi.