|
||||
|
|
Ætlað þeim sem langar að lesa Sturlungu en hafa aldrei getað brotist inn í hana.
Leiðin inn í Sturlungu er torsóttari og villugjarnari en inn í flestar okkar helstu fornsögur. En þeim sem þangað komast opnast stórbrotinn og óviðjafnanlegur heimur með mögnuðum sögupersónum og dramatískum atburðum. Á þremur kvöldum endursegir Einar Kárason með eigin orðum helstu viðburði og leikendur á sviði 13. aldar, með aðaláherslu á Örlygsstaðabardaga og löngum aðdraganda hans, Flóabardaga og að lokum Flugumýrarabrennu. Gott tækifæri gefst til umræðna og leiðbeint verður inn um bakdyr sem opnast að veröld þessarar mögnuðu bókar.
Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun HÍ.