Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Leikandi skrif

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Auður Jónsdóttir, rithöfundur
Verð kr: 9.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Ísafirði
Námskeið hefst: 29/09/2008 - Umsóknarfrestur til: 29/09/2008
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Kennt mánudaga og miðvikudaga kl. 18.30 – 20.20 (4 skipti)

Námskeið fyrir alla þá sem vilja þjálfa sig í að koma hugsunum sínum á blað hvort sem það er ritun sendibréfs, blaðagreinar, fundargerðar, bloggs, samning ritgerðar, bókar eða skáldsögu. Námskeiðið er um almenna textagerð og skapandi skrif. Fjallað verður um mismunandi aðferðir við textagerð, algengar málvillur, hugsanavillur og ambögur, muninn á loðnum og skýrum texta, fagurfræði í rituðu máli og loks tæknina að fara yfir eigin textasmíð. Allir þátttakendur fá æfingu í að skrifa texta og fara yfir hann en kennslan að öðru leyti löguð að þörfum og áhuga þátttakenda. Hver þátttakandi getur unnið með nokkra texta sem lúta að áhugasviði hans og þróað skrif fyrir ólík form svo sem blaðagreinar, blogg, pistla, tölvupóst, myndasögur, skáldskap og ýmsar stílæfingar. Þeir sem eiga smásögur eða
uppkast að skáldsögum í skrifborðsskúffunni geta jafnframt fengið aðstoð við að þróa sögurnar sínar. Kennslugögnin verða úr ýmsum áttum, allt frá stílvangaveltum þjóðskálda að útprentuðum bloggum dagsins í dag.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is