|
||||
|
|
Leiðtogahæfni er ekki bara ákjósanlegur eiginleiki stjórnenda í formlegu forystuhlutverki heldur allra þeirra sem vilja hafa jákvæð áhrif á atburði og aðstæður í góðri samvinnu við annað fólk. Þeir sem ná að virkja leiðtogann í sjálfum sér á jákvæðan hátt eru líklegri til að hafa góða stjórn á eigin lífi, sýna frumkvæði í starfi og hafa jákvæð áhrif á aðra. Þeir hafa jafnframt góða sjálfsþekkingu, sýna sjálfsstjórn og reyna að forgangsraða þannig að daglegar athafnir, ákvarðanir og gerðir færi þá nær þeim markmiðum sínum að lifa sem innihaldsríkustu lífi í leik og starfi.
Námskeiðið er ætlað hjúkrunarfræðingum og haldið í samstarfi við Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga.