|
||||
|
|
Á námskeiðinu læra þátttakendur að gera leðurtösku með fóðri og renndum vasa. Kennt er grunnsnið sem auðvelt er að breyta. Þátttakendur læra að sauma böndin, setja hnoð, kósa og annað sem tengist töskugerðinni. Ekki er nauðsynlegt að vera vanur að sauma til að koma á námskeið. Saumað er á venjulegar heimilissaumavélar og þurfa þátttakendur að koma með saumavélar og skæri. Gott er að hafa leðurnál í vélinni eða nál sem þolir leðursaum. Önnur verkfæri verða lánuð til afnota á meðan á námskeiði stendur.
Innifalið í verði: Kennsla, leður í tösku og bönd, fóður og rennilás. Kaupa þarf aukalega roð eða annað skraut ef fólk vill. Sá kostnaður fer yfirleitt ekki yfir 2–3.000 krónur.
Mikilvægt að skrá sig tímanlega. Skráningu lýkur viku áður en námskeiðið hefst.