Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Leðurtöskugerð - Árneshreppur

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Sigrún Helga Indriðadóttir hjá Rúnalist
Verð kr: 21.000 -
Staður: Árneshreppur
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt sunnudaginn 24. október. Verð er fyrir utan efniskostnað.

Saumað er úr íslensku lambsleðri – skreytt með roði (4 teg í boði), smálambi eða strútsfót. Saumuð verður einföld handtaska sem auðvelt er að breyta og gera að sinni eigin. Nemendur læra að byggja upp töskuna, fóðra og setja renndan vasa og GSM vasa innan í töskuna. Setja í segulsmellu, nota hnoð, kósa, sylgju eða D. Nemendur þurfa að hafa með sér saumavél, góð skæri, leðurnálar í saumavélina (stærð 90 – 120). Einnig er gott að hafa ef nemendur eiga, skurðarmottu – stiku og hníf, góðan heftara og grófari tvinna, fitupenna ef hann er til á bænum. Nemendur þurfa að hafa grunnkunnáttu á saumavél.

Verð á námskeiðið er fyrir utan efniskostnað. Hráefniskostnaður er 12.000 kr., inni í því er allt hráefni í töskuna nema leður til skreytingar ef vill (roð - smálamb - strútur) verð á því getur hlaupið á .1000- 5.000 kr

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is