Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Líknandi meðferð - námskeið fyrir sjúkraliða

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Svandís Íris Hálfdánardóttir, hjúkrunarfræðingur og Elísabet Pétursdóttir, sjúkraliði
Verð kr: 31.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 06/05/2011 - Umsóknarfrestur til: 05/05/2011
Fjöldi kennslustunda: 10
Ath: Kennt föstudaginn 6. maí kl. 10:00-17:00. Lágmarksfjöldi þátttakenda 12.

Haldið í samvinnu við Framvegis símenntunarmiðstöð.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur þekki hugmyndafræði líknarmeðferðar og fyrir hvað sú meðferð stendur, skoði hvernig líknarmeðferð er veitt á mismunandi stöðum í heilbrigðiskerfinu, þekki helstu þarfir sjúklinga og aðstandenda, þekki algeng einkenni og meðferð einkenna hjá sjúklingum í líknarmeðferð, skoði eigin samskiptamáta og eigin líðan í starfi.

Á námskeiðinu verður fjallað um líknarmeðferð og umönnun við lok lífs. Farið verður í þá heildrænu nálgun sem líknarmeðferð gengur út á og rætt um mikilvægar þarfir sjúklinga og aðstandenda. Fjallað verður um algeng einkenni og meðferð þeirra hjá sjúklingum í líknarmeðferð. Rætt verður um samskipti, siðfræði og líðan í starfi. Starf sjúkraliða á líknardeild verður kynnt.

Leiðbeinendur eru Svandís Íris Hálfdánardóttir, sérfræðingur í líknandi hjúkrunarmeðferð Landspítala og Elísabet Pétursdóttir, sjúkraliði líknardeild Landspítala Kópavogi.

Þátttakendur eru minntir á að hægt er að sækja um styrk í starfsmenntasjóð vegna námskeiðsgjalds.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is