Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Listaverk úr mannshári - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Ásta Kristinsdóttir
Verð kr: 11.900 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt laugardaginn 16. október kl. 10:00 – 16:00. ATh Frestað um óákveðinn tíma.

Vitað er að íslenskar konur hafa kunnað aðferðina við að vinna listaverk úr mannshári alla vega frá miðri 19. öld en útbreiðsla þessa handverks er ekki mikil í dag.

Á námskeiðinu læra þátttakendur að vinna með mannshár, gera rósir, laufblöð og skrúfur og setja saman í listaverk. Gott ef þátttakendur geta komið með prjóna númer 1 ½ og 2 ½. Þeir sem eiga hár til að vinna með geta komið með það, en annars verður allt efni á staðnum.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is