Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Listin að gera lista: Markviss forgangsröðun - leið til aukinna afkasta - fjarkennt frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Gunnar Jónatansson, framkvæmdastjóri
Verð kr: 14.800 -
Staður: Ísafjörður, Hólmavík, Patreksfjörður
Námskeið hefst: 06/02/2012 - Umsóknarfrestur til: 27/01/2012
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt mánudagana 6., 13. og 20. febrúar kl. 10:30-12:00 (3 skipti)

Námskeið frá Endurmenntun HÍ, kennt í gegnum fjarfundabúnað.

Á námskeiðinu kynnast þátttakendur af eigin raun ólíkum aðferðum við gerð lista og velja þá aðferð sem gæti hentað þeim best.

Að bæta færni í forgangsröðun er öflug leið til að takast á við amstur dagsins. Fjölmargir sérfræðingar á sviði stjórnunar hafa sýnt fram á leiðir til þess að gera lista, sem henta og virka, við ólíkar aðstæður.
Að gera listann er aðeins fyrsta skrefið til aukinna afkasta. Það að forgangsraða honum með 80/20 lögmálinu skerpir sýn og mikilvægustu málin komast á dagskrá og svokölluðum slökkvistörfum fækkar.

Ætlað öllum stjórnendum og starfsmönnum sem vilja kynnast öflugum, en um leið einföldum, leiðum til að stýra betur eigin vinnutíma og aðferðum við að koma verkum í framkvæmd. Kennt er í þremur 90 mín. hraðlotum.

Þátttakendur eru hvattir til að koma með eigin dagbók og vinna með sinn tíma og verkefni á námskeiðinu.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is