|
||||
|
|
Námskeiðið hefst kl. 11.00 og stendur til kl. 15.00
Matjurtir
Á námskeiðinu er fjallað um sáningu, ræktun og umönnun í ræktun matjurta. Greint er frá hefðbundnum og óhefðbundnum ræktunaraðferðum, jarðvegi og áburðargjöf, sýndar mismunandi gerðir ræktunarbeða, karma og skjólgjafa. Saga matjurtaræktar á Íslandi reifuð, skýrt frá uppruna tegundanna sem teknar eru til umfjöllunar, eðliseinkennum um 40 tegunda og yrkja ásamt því að fjalla lítillega um hollustu og lækningamátt matjurta. Farið er yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá matjurtir og um notkun eiturefna og lífrænna lausna gegn vágestum og sjúkdómum og lýst nokkrum aðferðum við geymslu og matreiðslu.
Kryddjurtir
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu tegundir kryddjurta sem ræktaðar eru utandyra, í eldhúsglugganum eða undir ljósi. Hvernig ræktun þeirra er háttað, um sáningu þeirra, forræktun og gróðursetningu. Fjallað um jarðveg, áburðargjöf og umhirðu, gefinn gaumur að helstu meindýrum og sjúkdómum sem herja á jurtirnar og hvernig best er að verjast þeim. Farið yfir ræktun þeirra og hvað þarf að gera til að ná góðri uppskeru. Læra að þekkja kryddjurtirnar og um nýtingu þeirra, geymsluaðferðir og möguleikana í matseld. Með námskeiðsgögnunum fylgja gómsætar uppskriftir þar sem kryddið nýtur sín vel.
Kennt verður meðal annars hvernig á að rækta dill, steinselju, garðablóðberg (timían) og fenniku og ýmsar aðrar tegundir.