|
||||
|
|
Námskeiðið átti upphaflega að vera 24. apríl en hefur verið frestað til 8. maí.
Á námskeiðinu verður meðal annars fjallað um sáningu, ræktun og umönnun mat- og kryddjurta. Farið verður yfir sjúkdóma og skordýr sem hrjá mat- og kryddjurtir og hvernig best er að verjast þeim. Fjallað verður um nýtingu jurtanna og geymsluaðferðir og fara þátttakendur heim með gómsætar uppskriftir og góðar hugmyndir.
Ásamt því að vera garðyrkjufræðingur er Auður ritstjóri tímaritsins Sumarhús og garðurinn. Einnig býður hún upp á fræðslu með námskeiðahaldi og ráðgjöf til garðeigenda og tekur að sér einstaka garðverkefni þar sem veitt er ráðgjöf um plöntuval, aðstoðar við gróðursetningu og skipulag garðsins.
Nemendur á matjurtanámskeiði á Patreksfirði.