Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Matreiðsla og heimilisstörf

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Elín Ólafsdóttir
Staður: Grunnskólinn á Ísafirði, heimilisfræðistofa
Fjöldi kennslustunda: 18
Ath: Kennt á haustönn 2010 eða vorönn 2011.

Haldið í samstarfi við Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra á Vestfjörðum og Fjölmennt – fullorðinsfræðslu fatlaðra.

Smáréttir og hentugur hátíðamatur. Þátttakendur læra að búa til nokkra smárétti og rétti sem fljótlegt er að matreiða. Þeir taka þátt í matargerð, borðhaldi og frágangi eftir máltíð. Kennt verður að nota einfaldar, myndrænar uppskriftir. Lögð er áhersla á þátttöku, virkni og frumkvæði nemenda.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is