Meðferð matvæla er 60 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 20 ára og starfa við framleiðslu eða meðhöndlun matvæla. Námið tekur eina önn og meðal námsþátta eru örverufræði, matvælaeftirlit, þrif, vöruþekking og sýnatökur.