Kennari: Ester Rut Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Melrakkaseturs Íslands.
Verð kr: 4.100 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 15/04/2010 - Umsóknarfrestur til: 15/04/2010
Fjöldi kennslustunda: 3
Ath: Kennt fimmtudaginn 15. apríl kl. 20:00-22:00.
Námskeið haldið í samvinnu við Melrakkasetur Íslands. Fjallað verður um melrakkann sem auðlind sem hægt er að virkja og nýta í sjálfbærri náttúrulífs ferðamennsku. Fjallað verður um tegundina sem slíka, sérstöðu hennar og einkenni, líffræði og útbreiðslusögu, hvar dýrin er helst að finna, vísbendingar um ferðir þeirra, hegðun og útlit, einkenni og „týpur“. Þá verður farið í hvernig ber að umgangast villta refi og hvað ber að varast. Að lokum verður farið yfir gildandi lög og reglur um villt dýr í náttúru Íslands.