Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Menningararfurinn - Mannabein og mannamein

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Hildur Gestsdóttir
Verð kr: 1.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12 Ísafirði, Þekkingarsetrið Skor Patreksfirði, Þrónarsetrið á Hólmavík
Námskeið hefst: 02/12/2010 - Umsóknarfrestur til: 02/12/2010
Fjöldi kennslustunda: 2
Ath: Haldið fimmtudaginn 2. desember kl. 17:00.

Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og hugsanlega fleiri aðila, mun í vetur að gangast fyrir röð fyrirlestra undir heitinu Menningararfurinn.  Fyrirlestrarnir eru sendur út í gegnum fjarfundabúnað og er hægt að sækja þá þar sem Fræðslumiðstöðin hefur aðgang að slíkum búnaði.

Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum í fornleifafræði og öðrum tengdum greinum, svo sem hvað eru fornleifar, eru allar fornleifar mikilvægar? Hvað geta mannabein, dýrabein, plöntur og skordýr sagt okkur um fortíðina? Hvað segja örnefni, gamlar ferðabækur og landakort okkur?

Áætlað er að fyrirlestrarnir verði þriðja fimmtudag hvers mánaðar. Næsti fyrirlestur verður þó fimmtudaginn 2. desember nk. Þá mun Hildur Gestsdóttir fornleifafræðingur fjalla um efnið Mannabein og mannamein.
Fyrirlesturinn hefst kl. 17:00 og verður að minnsta kosti sendur til Fræðslumiðstöðvarinnar að Suðurgötu 12, Ísafirði. Um aðra staði ræðst af áhuga.  Reikna má með að fyrirlesturinn taki um eina klukkustund.

Aðgangseyrir er 1.000 kr. 

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is