|
||||
|
|
Fræðslumiðstöð Vestfjarða, í samstarfi við Fornleifastofnun Íslands, Vestfirði á miðöldum, Minjavörð Vestfjarða og fleiri aðila, gengst fyrir röð fyrirlestra í vetur undir yfirskriftinni Menningararfurinn.
Fimmtudaginn 17. mars mun Jón Jónsson menningarfulltrúi Vestfjarða fjalla um hvernig þjóðmenning og saga hefur með fjölbreyttum hætti verið nýtt við atvinnusköpun á Vestfjörðum. Um leið verður skoðað hvaða áhrif slík notkun á menningararfi svæðisins hefur á ímynd þess út á við og sjálfsmynd íbúanna. Skyggnst verður inn í framtíðina og rætt um möguleika á fjölgun skapandi starfa og frekari uppbyggingu á þessu sviði.
Fyrirlesturinn er í fjarfundabúnaði frá Hólmavík.