|
||||
|
|
Hvernig upplifa erlendir gestir okkur? Hvernig viljum við að þeir sjái okkur? Fræðslumiðstöð Vestfjarða bíður upp á stutt námskeið í menningarlæsi. Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem eiga samskipti við fólk frá öðrum löndum, sérstaklega þeim sem koma að ferðaþjónustu á einn eða annan hátt svo sem leiðsögumönnum, starfsfólki gisti- og veitingastaða, starfsfólki safna, verslunarfólki, leigubílstjórum og rútubílstjórum. Námskeiðið hentar líka starfsmönnum fyrirtækja og stofnana sem eiga í erlendum samskiptum og öðrum þeim sem hafa áhuga á ólíkum menningarheimum.
Námskeiðinu er ætlað er að vekja til umhugsunar um hvernig við skiljum fólk frá öðrum menningarsvæðum og hvernig það upplifir okkur. Fjallað verður um einkenni á ólíkri menningu og einkenni einstaklinga frá ólíkum menningarheimum, hvernig við sem Íslendingar erum, hvernig aðrir sjá okkur og hvernig við viljum að þeir upplifi okkur. Komið verður inn á tungumál og líkamstjáning (body language). Einnig fjallað um einkenni helstu þjóða sem koma til Vestfjarða.
Námskeiðið í er formi fyrirlestra, notaðar verða dæmisögur og hvatt til umræðna.