Kennari: Baldur Hafstað, Kennaraháskóla Íslands.
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða með möguleika á að senda út í fjarfundi frá Ísafirði.
Námskeið hefst: 14/08/2008 - Umsóknarfrestur til: 11/08/2008
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Fimmtudaginn 14. ágúst kl. 9 - 17
Námskeiðinu er ætlað að ná til kennara á öllum stigum grunnskólans og örva áhuga þeirra á móðurmálskennslu af öllu tagi. Markmið námskeiðsins er að setja fram hugmyndir og skapa umræðu um málfræði, bókmenntir, lestur, ritun og frásögn í grunnskólum. Unnin verða hagnýt verkefni tengd ofangreindum þáttum ásamt umfjöllun um barnabækur, þjóðsögur, frásagnir og skapandi ritun.