|
||||
|
|
Námskeiðið er eingöngu ætlað þátttakendum í fjarfundi.
Vilt þú koma skipulagi á myndirnar þínar með rafrænu myndaalbúmi? Vilt þú fá tækifæri til að geyma myndasafnið þitt á öruggu svæði óháð þinni tölvu eða öðrum tækjabúnaði? Langar þig til að deila myndunum þínum með vinum og ættingjum á einfaldan og öruggan hátt? Á námskeiðinu kynnist þú þeim möguleikum sem flickr.com býður upp á.
Myndmiðlun og myndmálið er útgangspunktur þess sem gerist á flickr.com sem er stærsti samfélagsvefur heims þegar við skoðum myndmiðlun. Á flickr.com geymir þú myndirnar þínar í öruggu og aðgengilegu umhverfi sem þú getur nálgast frá hvaða tölvu sem er, hvenær sem er.
Á námskeiðinu skoðum við flickr.com og vinnuumhverfi, ókeypis og áskriftarreikninga. Kennt verður hvernig við setjum upp flickr, hlöðum upp myndum, skilgreinum þær og setjum lykilorð. Auk þess verður farið í aðferð til að deila myndum og önnur vinnsla með myndirnar er kynnt. Á námskeiðinu eru einnig kynnt ókeypis verkfæri til myndvinnslu og aðrir myndabankar, eins og Picasa, eru nefndir til sögunnar. Grunnþekking á flickr.com nýtist til að miðla myndum til gleði og/eða ábata og tengsla.