Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Myndbandavinnsla í tölvu

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: Jóhannes Jónsson í Digi-film
Verð kr: 15.200 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 09/11/2010 - Umsóknarfrestur til: 09/11/2010
Fjöldi kennslustunda: 12
Ath: Kennt þri. 9., fim. 11., þri. 16.og fim. 18. nóvember kl. 20:00-22:00. Verð gæti hækkað lítillega ef kaupa þarf hugbúnað.

Námskeið fyrir þá sem vilja varðveita minningar á myndböndum. Margir eiga mikið af óunnu myndbandsefni sem gæti verið skemmtilegt að vinna með og klippa. Á námskeiðinu er farið í hvernig myndefnið er fært af myndatökuvél í tölvu og hvernig klippa má myndefni á einfaldan hátt, setja inn hljóð, tónlist og texta og gera efnið aðgengilegra til spilunar á mismunandi formi. Ekki þarf að eiga fullkomna myndbandsupptökuvél, nóg er að eiga litla stafræna myndavél sem býður upp á myndbandsupptöku. 

Notaður verður frír eða tiltölulega ódýr hugbúnaður.

Þátttakendur geta komið með sínar eigin tölvur eða fengið afnot af tölvum Fræðslumiðstöðvarinnar.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is