Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Myndgreining á miðtaugakerfi - fjarnámskeið frá EHÍ

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Grímheiður F. Jóhannsdóttir, geislafræðingur o.fl.
Verð kr: 19.950 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 20/11/2009 - Umsóknarfrestur til: 13/11/2009
Fjöldi kennslustunda: 11
Ath: Kennt fös. 20. nóv. kl. 12:30 - 16:30 og lau. 21. nóv. kl. 9:00 - 12:30

Í samvinnu við Félag Geislafræðinga. Einkum ætlað fagfólki á heilbrigðissviði.

Miklar framfarir hafa verið í myndgreiningu miðtaugakerfisins á undanförnum árum bæði í tækjabúnaði og rannsóknaraðferðum. Námskeiðinu er ætlað að fara yfir mismunandi rannsóknaraðferðir á miðtaugakerfi. Ábendingar, frábendingar, aðferðafræði og sjúkdómafræði. Helsta áherslan verður á aðferðarfræðina þ.e.a.s hvaða rannsóknaraðferðir henta best miðað við einkenni sjúklings og hvaða niðurstöðu sé að vænta hverju sinni.

Að loknu námskeiðinu ættu geislafræðingar og aðrir þátttakendur námskeiðsins að vera betur í stakk búnir til að ákveða og ráðleggja hvaða rannsóknaraðferðum skal beitt og hvers er að vænta af niðurstöðunum.

Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands. 

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is