Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Myndvinnsla með Paint.net

Flokkur námskeiðs: Tölvur
Kennari: Þuríður Sigurðardóttir
Verð kr: 10.800 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 05/11/2010 - Umsóknarfrestur til: 03/11/2010
Fjöldi kennslustunda: 9
Ath: Kennt á föstudögum kl. 14:00-16:00. Hefst 5. nóvember.

Paint.net er myndvinnsluforrit fyrir alla. Það inniheldur allar algengustu aðgerðir stærri og dýrkeyptari myndvinnsluforrita, enda stundum kallað Photoshop fyrir almenning.

Á námskeiðinu er m.a. farið í hvernig flytja á myndir af myndavél yfir á tölvu, afritun mynda af Internetinu og skipulag gagnageymslu. Einnig myndvinnslu þar sem farið er í hvað pixlar eru, hvernig mynd er klippt út af bakgrunni og sett yfir á annan bakgrunn, hvernig maður breytir lýsingu og lit mynda og fleiri atriði sem skipta máli.

Upplagt fyrir þá sem hafa litla sem enga reynslu af myndvinnslu.

Námskeiðið verður haldið á dagtíma og því hentugt til dæmis fyrir eldri borgara og aðra sem eiga lausa stund yfir daginn.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is