|
||||
|
|
Nám frá Fræðslusetrinu Starfsmennt - kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.
Skráning fer fram á vef Starfsmenntar www.smennt.is (ath. ofangreindur umsóknarfrestur er ekki gildur)
Námslýsing
Í okkar hraða þjóðfélagi hefur þörfin fyrir gott starfsfólk í stjórnunareiningum aldrei verið meiri. Þetta starf krefst þess að starfsmaðurinn sé alltaf til taks og geti unnið hratt og fumlaust úr þeim vandamálum sem upp kunna að koma. Starfsmaðurinn þarf að hafa víðtæka þekkingu á mörgum sviðum, eins og fram kemur í námsþáttunum hér að neðan. Starfsfólk í stjórnunareiningum þarf að geta hlustað á stjórnandann og hinn almenna starfsmann, miðlað málum og veitt ráðgjöf. Starfsmaðurinn þarf að geta tekið á móti skilaboðum og komið þeim til skila á rétta aðila, séð um upplýsingamiðlun innan stofnunar sem utan og oft á tíðum sett upplýsingar inn á vef. Starfsmaðurinn þarf að hafa mikla skipulagshæfileika, vera góður í samskiptum, geta starfað sjálfstætt og vera nákvæmur í vinnubrögðum. Hann þarf einnig að geta skipulagt fundi, séð um fundarboð og unnið úr fundargögnum. Öll þessi störf krefjast góðrar tölvukunnáttu og skipulagshæfni. Námið samanstendur af 11 námsþáttum sem eru alls 52 kst.
Markmið
Þessi námsleið er ætluð samstarfsfólki stjórnenda sem þurfa að búa yfir fjölbreyttri hæfni til að auðvelda framgang verkefna og tryggja efndir. Markmið með náminu er að þátttakendur læri hagnýtar aðferðir á sviði stjórnunar og samskipta til að takast á við flóknari verkefni á vinnustað og aukna ábyrgð. Einnig stefnt að því að stjórnendur hafi faglegt og úrræðagott starfsfólk sér við hlið sem getur unnið sjálfstætt og af öryggi og þannig dregið úr margskonar álagi sem fylgir auknum hraða og kröfum á vinnustað. Þátttakendur fá innsýn inn í störf og ábyrgð stjórnenda og á mikilvægi starfa innan margvíslegra stjórnunareininga á vegum ríkisins. Lögð er áhersla á sveigjanleika, sjálfstæði og skipulagshæfni þátttakenda til að geta tekist á við flókin verkefni sem kalla á yfirgripsmikla yfirsýn. Starfsfólk í stjórnunareiningum fær einnig þjálfun í samskiptafræðum til að geta komið fram fyrir hönd stjórnenda og unnið í teymum á vinnustað. Þá eiga þátttakendur að geta tekið á vafamálum og ágreiningsmálum á markvissan og uppbyggjandi hátt.
Fyrir hverja
Námið er ætlað skrifstofufólki sem vinnur mikið með stjórnendum og vill sérhæfa sig í þannig samstarfi. Þetta er nám til að treysta verklag starfsmanna í stjórnunareiningum og veita þeim viðurkenningu á framlag sitt.
Námsþættir:
Námið er alls 52 kennslustundir. Kennt er mánudaga og miðvikudaga 25. október - 2. desember 2011 kl. 13:00-15:50 (13 skipti).
Námskeiðið er án endurgjalds fyrir félagsmenn aðildarfélaga Starfsmenntar (t.d. FOSVest)
Verð fyrir greiðandi þátttakendur: 52.000 ISK.
Nánari upplýsingar hjá Starfsmennt í síma 525 8395.