Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum

Flokkur námskeiðs: Námsleiðir FA
Kennari: Ýmsir
Verð kr: 51.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 18/01/2011 - Umsóknarfrestur til: 18/01/2011
Fjöldi kennslustunda: 300
Ath: Kynningarfundur haldinn 18. janúar kl. 18:00. Á þeim fundi verður kennslutími ákveðinn í samráði við væntanlega þátttakendur.

Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum er 300 kennslustunda nám ætlað þeim sem eru að minnsta kosti 23 ára, eru starfandi á vinnumarkaði og hafa hafið nám á framhaldsskólastigi en ekki lokið almennum bóklegum greinum með prófi.

Námið hefur hliðsjón af greinanámskrám Aðalnámskrár framhalds-skóla í íslensku, tungumálum, stærðfræði og lífsleikni en með sérstakri áherslu á mismunandi námsnálgun námsmanna og samþættingu námsþátta.

Námið skiptist í eftirfarandi námsþætti:


NámsgreinKennslustundir
Námstækni, sjálfsþekking og samskipti32
Íslenska 66
Danska 36
Enska36
Valáfangartungumálanáms 60
Stærðfræði66
Mat á námi og námsleið4
Samtals 300

Náminu verður skipt á tvær annir, sú fyrri hefst upp úr miðjum janúar og lýkur í maí 2011 og sú síðari stendur frá september til desember 2011.

Kennslutími, það er hvort kennt verður á dagtíma eða eftir venjulegan vinnutíma, ræðst af þátttakendum. Endanleg stundaskrá mun því ekki liggja fyrir fyrr en betur kemur í ljós hverjir ætla að vera með.

Áhugsamir eru hvattir til að skrá sig sem fyrst. Allar nánari upplýsingar veitir Smári Haraldsson forstöðumaður Fræðslumiðstöðvarinnar í síma 456 5025.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is