|
||||
|
|
Fræðslumiðstöð Vestfjarða býður upp á námsaðstoð fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla og fyrstu bekkjum framhaldsskóla.
Í boði er aðstoð í íslensku og ensku. Gert er ráð fyrir nokkrum í hóp en nemendur geta verið mislangt komnir í náminu. Ekki er um eiginlega kennslu að ræða heldur fá nemendur aðstoð í því námsefni sem þeir eru að vinna að í skólanum hverju sinni.
Hefst í október eða þegar eftirspurn er fyrir hendi. Verð fyrir hvert skipti eru 3.000 kr.