Kennari: Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12
Námskeið hefst: 23/01/2009 - Umsóknarfrestur til: 23/01/2009
Fjöldi kennslustunda: 6
Ath: Kennt föstudag 23. janúar kl 17:00-21:00. Námskeiðið er frítt.
Námstækni er að læra að vinna skipulega, að gera ákveðna hluti á tilteknum tíma og skipuleggja tíma sinn svo skil verði á milli vinnu og frítíma. Á námskeiðinu verður farið í aðferðir við skimun texta og gerð útdrátta og stutt kynning á hugarkortum við glósugerð. Vel heppnuð og skipulögð vinnubrögð í námi draga úr streitu skapa meiri frítíma og bæta árangur.