|
||||
|
|
Náttúrustofa Vestfjarða, Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og Fræðslumiðstöð Vestfjarða gangast fyrir röð alþýðlegra fyrirlestra um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða bæði um þær rannsóknir sem nú eru stundaðar á Vestfjörðum og almennt um náttúrufræðileg efni. Fyrirlestrarnir verða sendir út í fjarfundabúnaði þannig að þeir sem hafa aðgang að slíkum búnaði geta nýtt sér þá.
Fyrirlestrarnir verða að jafnaði þriðja fimmtudag í mánuði kl. 17:00 - 18:00.
Að þessu sinni mun Hafdís Sturlaugsdóttir, landnýtingarfræðingur hjá Náttúrustofu Vestfjarð fjalla vítt og breytt um villtar nytjajurtir á Vestfjörðum. Farið verður yfir hvað einkennir Vestfirði gróðurfarslega. Rannsóknir sem hafa verið gerðar og eru í gangi varðandi nýtingu villtra nytjajurta á Vestfjörðum verða kynntar. Einnig verður reynt að svara spurningunni um hverjir nýta villtan gróður og í hvaða tilgangi. Nokkur lykilatrið við að tínslu og varðveislu plantna verða kynnt og fjallað ítarlega um nokkrar algengar plöntutegundir og nýtingu þeirra.