|
||||
|
|
Haldíð í samstarfi við Rannsóknarstofnun um lyfjamál við Háskóla Íslands. Námskeiðið er einkum ætlað þeim sem starfa að heilsutengdum málefnum eða hafa mikinn áhuga á og/eða starfa við óhefðbundnar meðferðir. Öllum áhugasömum er þó velkomið að taka þátt í námskeiðinu.
Á námskeiðinu verður leitast við að veita þátttakendum aukna hæfni til að tileinka sér ýmsan fróðleik um óhefðbundin meðul úr náttúrunni. Farið verður yfir ýmis hugtök, svo sem frásog, aðgengi, aukaverkanir, frábendingar o.s.frv. Ennfremur verður útskýrður munurinn á náttúruvöru, náttúrulyfi, hómópataremedíum o.fl. og farið yfir helstu atriði er lúta að öryggi og öðrum þáttum. Einnig verður farið yfir hvað þarf að hafa í huga við lestur greina og auglýsinga um málefnið auk almenns fróðleiks um markhópa, útbreiðslu notkunar o.fl. Hvatt verður til umræðna.
Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Endurmenntun Háskóla Íslands.