Kennari: Björn Hafberg, náms- og starfsráðgjafi
Verð kr: 1.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 05/05/2010 - Umsóknarfrestur til: 02/05/2010
Fjöldi kennslustunda: 4
Ath: Kennt miðvikudaginn 5. maí kl. 19:00-22:00
Fjallað verður um mismunandi gerðir prófa s.s. ritgerða/ krossapróf og hvað þarf sérstaklega að hafa í huga við hverja prófgerð. Skoðaðar verða mismunandi aðferðir við prófundirbúning s.s. lestraraðferðir tímaskipulagningu og sjálfsmat m.a. með vinnu við kortlagningu hvers og eins í gegnum svokallaðan námshring. Einnig verður leitast við að greina helstu orsakaþætti prófkvíða og leiðir til að ráðast gegn honum.