Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Ráðlagður dagskammtur af dansi- Patreksförður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Sigurborg Kr. Hannesdóttir
Verð kr: 8.500 -
Staður: Þekkingarsetrið Skor
Námskeið hefst: 09/10/2010 - Umsóknarfrestur til: 01/10/2010
Fjöldi kennslustunda: 5

• Þráir þú að vera meira lifandi?
• Þarf dansarinn innra með þér að fá útrás?
• Saknarðu innra og ytra jafnvægis?
• Ertu undir andlegu, tilfinningalegu og líkamlegu álagi og þarft að losa um?
Þú getur dansað þig inn í betri líðan, minni spennu og meira frelsi.
5Rytma® dans er hreyfing sem losar um, hreyfir við og styrkir líkamann og manneskjuna. 
Einstakt sambland af sjálfsrækt og líkamsrækt.

RDS af dansi er hálfs dags námskeið þar sem farið er í gegnum Rytmana 5. 
Í flæði finnum við mýktina, í stakkató sækjum við kraftinn, í kaos sleppum við takinu og í lýrík svífum við leikandi létt og hvílum loks í kyrrð.  Þannig er dansað í gegnum bylgju sem skilar dansaranum ferskari og meira lifandi upp að strönd lífsins.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is