Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Rekstur fiskiskipa - fjarnámskeið

Flokkur námskeiðs: Atvinnulífið
Kennari: Ingólfur Arnarson, sjávarútvegsfræðingur
Verð kr: 49.000 -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða, Suðurgötu 12, Ísafirði
Námskeið hefst: 26/04/2010 - Umsóknarfrestur til: 21/04/2010
Fjöldi kennslustunda: 24
Ath: Kennt 26., 28. og 29 apríl og 3., 5. og 6 maí kl. 18:00-21:00.

Námskeiðið tekur til allra helstu rekstrar- og fjárfestingaþátta fiskiskipa, frá trillum til verksmiðjuskipa. Ennfremur verða reiknuð og athuguð áhrif stjórnvaldsaðgerða (t.d. aflamarks, sóknarmarks og fyrningarleiðar) á afkomu hinna ýmsu gerða fiskiskipa. Námskeiðið er byggt á reiknilíkani sem innifalið er í þáttökugjaldi. Engin sérstakrar tölvukunnáttu er krafist.

Námskeiðið hentar öllum þeim sem koma að rekstri fiskiskipa hvort sem um er að ræða strandveiðar eða togaraútgerð eða þeim sem með einum eða öðrum hætti tengjast útgerð eða eru áhugamenn þar um. Leiðbeinandi er Dr. Ingólfur Arnarson, sjávarútvegsfræðingur. Ingólfur hefur víðtæka alþjóðareynslu innan sjávarútvegs; sem sjómaður, útgerðarmaður, ráðgjafi og hefur stundað rannsóknir og kennslu á háskólastigi í áratugi.

Kennsla fer fram dagana 26., 28. og 29 maí og 3., 5. og 6 maí frá kl. 18:00 til 21:00.

Námskeiðið er kennt í gegnum fjarfundabúnað frá Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum. Nauðsynlegt er að þátttakendur hafi aðgang að tölvu og interneti.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is