Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sætur biti í sumri og sól – námskeið um nýtingu villtra jurta í matargerð

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Ingveldur G. Ólafsdóttir
Verð kr: 9.900 -
Staður: Læknishúsið á Hesteyri
Námskeið hefst: 04/07/2009 - Umsóknarfrestur til: 01/07/2009
Fjöldi kennslustunda: 7
Ath:

Skráning á heimasíðu Vesturferða.

Hesteyri, ljósmynd BSE
Hvað er huggulegra en að vera í góðra vina hópi og njóta matar í íslenskri náttúru í laufskrúði sumars. Ingveldur G. Ólafsdóttir, sem sá um þættina Grasaferð og fjallaði um nýtingu jurta í náttúrunni á Rás 1, blæs til námskeiðs í Læknishúsinu á Hesteyri laugardaginn 4. júlí og kennir fólki að nýta sér hvönnina til matargerðar.

Ætihvönn, Angelica archangelica, nefnd eftir Gabríel erkiengli, hefur einnig verið kölluð erkijurt eða engilsjurt og segir það allt um ágæti jurtarinnar. Það þótti mikil búbót á árum áður að eiga hvönn í sínum garði, sem var bæði nýtt til lækninga og matargerðar. Á tímum alsnægta hefur dregið úr nýtingu hvannarinnar til muna og margir líta á hana sem illgresi. En til þess að halda henni í skefjum er heillaráð að leggja hvönnina sér til munns enda gómsæt í matargerð.

Á námskeiðinu kennir Ingveldur fólki að matreiða úr hvönn þar sem það er statt í náttúrunni. Ingveldi til aðstoðar við matreiðslu er Jóhann Hauksson fréttamaður.

Lagt verður af stað frá Ísafirði með Sjóferðum Hafsteins og Kiddýar kl. 18:00 og siglt til baka undir kyngimagnaðri vestfirski miðnætursól kl. 23:00. 

Námskeiðið er haldið í samvinnu við Vesturferðir. 

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is