Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sagnanámskeið - Ísafjörður

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Ingi Hans Jónsson og Sigurborg Kr. Hannesdóttir frá Sagnamiðstöð Íslands.
Verð kr: 16.300 -
Staður: Arnardalur í Skutulsfirði
Námskeið hefst: 25/09/2009 - Umsóknarfrestur til: 24/09/2009
Fjöldi kennslustunda: 15
Ath: Kennt fös. 25. sept. kl. 20:00-22:00 og lau. 26. sept. kl. 10:00-17:00. Lágmarksfjöldi 14 þátttakendur.

Haldið í samvinnu við Ferðaþjónustuna í Arnardal.

Hæfileikinn til að segja sögur, leynist í okkur öllum.  Á námskeiðinu virkjum við þennan hæfileika og fetum okkur áfram á sagnaslóðinni.  Við skoðum efniviðinn, þ.e. sögurnar sjálfar – það að velja sögu og endurskapa sögu.  Einnig söfnum við ýmsu í verkfærakistu sagnamannsins sem hann getur beitt til að glæða sögurnar sínar lífi. Fjallað verður um þær fjölmörgu leiðir þar sem nýta má sögur, t.d. í ferðaþjónustu, safnastarfsemi, í starfi með börnum og unglingum, með eldri borgurum og í allskyns menningarstarfsemi.  Ætlunin er að auðvelda þátttakendum að velja þann vettvang sem höfðar til þeirra.

Á námskeiðinu verður stuðst við sagnahandbók úr Evrópuverkefninu Storytelling Renaissance.

Á laugardeginum kl. 17.00 er stefnt að því að stofna Félag vestfirskra sagnaþula. Um kvöldið verður síðan óformleg sagnavaka með þátttakendum á námskeiðinu og félögum í nýstofnuðu Félagi vestfirskra sagnaþula.

Kennararnir Ingi Hans og Sigurborg hafa bæði fengist við sagnamennsku, kennt á námskeiðum og komið fram á sagnakvöldum hér heima og erlendis.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is