|
||||
|
|
Námskeið frá Framvegis - ætlað sjúkraliðum en öllum opið.
Markmið með námskeiðinu er að þátttakendur dýpki þekkingu sína á ýmsum sviðum samskipta í leik og starfi. Að loknu námskeiði eiga nemendur að geta greint samskipti á vinnustað og bent á leiðir til lausna.
Á námskeiðinu munu þátttakendur kynnast ólíkum samskiptaformum, fjallað verður um mun á jákvæðum og neikvæðum samskiptum. Fjallað verður um leiðir til að verjast ágengni og sýna sjálfstyrk sem og leiðir til úrlausna í erfiðum samskiptum. Farið verður yfir hvernig þátttakendur geta þekkt hvernig vinnustaðarmenning hefur mótandi áhrif á samskipti.