Kennari: Vala Friðriksdóttir
Verð kr: 11.500 -
Staður: Grunnskólinn Hólmavík
Námskeið hefst: 11/10/2007 - Umsóknarfrestur til: 10/10/2007
Fjöldi kennslustunda: 16
Ath: Fimmtudaginn 11. október kl 17-21 (efnisval og sníðagerð), föstudaginn 19. október kl 17-21 og laugardaginn 20. október kl 10-14
Námskeiðið er ætlað byrjendum og þeim sem eru óvanir að sauma. Kennd eru undirstöðuatriði við að sauma föt, taka mál og nota snið. Æskilegt að sauma eitthvað auðvelt fyrst, s.s. ófóðrað pils. Koma þarf með í fyrsta tíma: Títuprjóna, málband, pappírsskæri, sníðapappír, blýant og reglustiku (30 cm).
Þátttakendur komi með eigin saumavélar.