Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Seiðandi saltfiskur - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Tómstundir
Kennari: Bára Karlsdóttir á Café Riis
Verð kr: 7.900 -
Staður: Grunnskólinn á Hólmavík
Fjöldi kennslustunda: 8
Ath: Kennt þegar lágmarksþátttöku er náð.

Saltfiskur er sannkallaður veislumatur og fyrir þá sem búa við sjávarsíðuna er ekki er langt að sækja hráefnið. Fjallað verður um hvernig má matreiða saltfisk á nýstárlegan hátt til notkunar á veisluborð, t.d. djúpsteiktan, í forrétti og í suðræna saltfiskrétti. Þátttakendur miðla hugmyndum og enda námskeiðið á að snæða saman af saltfiskhlaðborði sem þeir útbúa.

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is