Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Sjálfsþekking og samskipti - Hólmavík

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Björn Hafberg náms- og starfsráðgjafi
Staður: Grunnskólinn á Hólmavík
Námskeið hefst: 13/03/2009 - Umsóknarfrestur til: 14/03/2009
Fjöldi kennslustunda: 14
Ath: Kennt föstudaginn 13. mars kl 19:30-21:30 og laugardaginn 14. mars kl 9-16.

Námskeiðið er hluti af námskránni “Nám og þjálfun í almennum bóklegum greinum” en verður öllum opið. Höfuðáhersla er lögð á að þátttakendur efli sjálfstraust sitt og færni í mannlegum samskiptum. Áhersla er á helstu atriði sem hafa áhrif á nám þ.á.m. upplag hvers og eins, áhuga, virkni, reglufestu og einbeitingu. Fjallað er um helstu áhrifaþætti í mannlegum samskiptum einkum áhrif sjálfstrausts á framkomu og ákveðni, óákveðni og ágengni í samskiptum. Einnig er lögð áhersla á leikni til að hlusta, að gagnrýna, að taka við gagnrýni og að leysa ágreining. 

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is