Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skemmtibátpróf - Patreksfjörður

Flokkur námskeiðs: Réttindanám
Kennari: Theódór R. Theódórsson.
Verð kr: 51.000 -
Staður: Þekkingarsetrið Skor
Fjöldi kennslustunda: 30
Ath: Vorönn 2012.

Kennd verða bókleg atriði sem krafist er skv. námskrá til skemmtibátaprófs, í siglingafræði, siglingareglum og stöðugleika. Bóklegt og verklegt próf veitir siglingaréttindi á 24 m skemmtibáta. Námskeiðinu lýkur með bóklegu og verklegu prófi til að fá útgefið skemmtibátaskírteini. Námskeiðið eru 26 kennslustundir auk 4 tíma prófs.

Námið er kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans.

Þátttakendur þurfa að útvega sér samsíðung, hringfara (sirkill) og reglustiku, almenn ritföng og glósubók. Sjókort eru innifalin í verði en ekki önnur gögn. Bóklegt og verklegt próf er innifalið í verði.

Skoða næst á undan Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is