Fræðslumiðstöð Vestfjarða  

Skipulögð kennsla

Flokkur námskeiðs: Endur- og símenntun
Kennari: Áslaug Melax, Sigrún Hjartardóttir og Svanhildur Svavarsdóttir leikskólasérkennarar og einhverfuráðgjafar.
Verð kr: 59.000 (m.a. 8 þátt) -
Staður: Fræðslumiðstöð Vestfjarða
Námskeið hefst: 23/01/2008 - Umsóknarfrestur til: 24/01/2008
Fjöldi kennslustunda: 24
Ath: 23., 24. og 25. janúar 2008

Námskeiðið er byggt á hugmyndafræði TEACCH kerfisins.

Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa lokið grunnnámskeiði um einhverfu, og eru aðstandendur eða starfa með börnum og ungmennum með einhverfu, í skólum og á sambýlum, eða hvar sem einstaklingar með einhverfu búa og starfa.

Markmiðið er að þátttakendur fái innsýn í hugmyndafræði TEACCH kerfisins og læri grunnatriði skipulagðrar kennslu og vinnubragða. Geti tekið þátt í uppbyggingu og notkun skipulagsins í skóla eða vinnustað og/eða á heimilinu.

Meðal efnis: Kynning á TEACCH kerfinu og skipulagðri kennslu og vinnubrögðum, boðskipti og samskiptaörðugleikar, félagsleg aðlögun og meðferð hegðunarerfiðleika. Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, myndböndum, umræðum og þjálfun þátttakenda. Skipt er upp í hópa og útbúin vinnusvæði þar sem þátttakendur fá að æfa sig með nemendum á ólíkum aldri, sem eru öll með einhverfu.

Verð kr. 59.000 miðast við 8 þátttakendur, séu þeir fleiri miðast verð við það.
Þær sem voru á námskeiðinu Einhverfa og skyldar þroskaraskanir í nóvember 2007 fá 10% afslátt af þessu námskeiði.

Dagskrá.doc

Skoða næsta námskeið
Fræðslumiðstöð Vestfjarða | kt. 511199-2049 | Suðurgata 12 | 400 Ísafirði | Sími:456 5025 | Fax: 456 5066 | frmst@frmst.is